14.2.2022

Alþingismenn hitta kjósendur á kjördæmadögum

Kjördæmadagar eru vikuna 14.–18. febrúar og eru því engir þingfundir á Alþingi þessa vikuna. Kjördæmadagana nýta þingmenn til að fara út í kjördæmi sín og hitta kjósendur, sveitarstjórnafólk, fulltrúa fyrirtækja og fleiri.

Næsti þingfundur verður haldinn mánudaginn 21. febrúar samkvæmt starfsáætlun Alþingis.